| Veður |
Veður á Reynivöllum, Selfossi,
06.02.12 kl 7:09:
Hiti 6.6°C
Raki 100%
Suð austan 3.1 m/s
Loftþ. 1014.4 hPa Hægt fallandi
Varmi sólar 0 W/m²
Úrkoma dagsins 1.2 mm
Úrkoma nú 0.0 mm/h
Hæsti hiti dagsins 6.6°C kl 7:09
Lægsti hiti dagsins 1.0°C kl 0:00
Hæsti hiti mánaðar 8.5°C
Lægsti hiti mánaðar -2.3°C
Hæsti hiti ársins 9.0°C
Lægsti hit ársins -12.1°C
Mesta úrkoma 2.6 mm/h kl 0:27
Mánuðarúrkoma 25.6 mm
Ársúrkoma 167.2 mm
Sólaruppkoma 9:49
Sólsetur 17:28
|
 |
 |
|
|
 |
| Selfoss, miðbær 17. júní 2005 |
| Meira frá Tanzaníu 04/02/2012
|
Útrásin heldur áfram (útflutningur á hugviti)
Nú eru tveir starfsmenn Verkfræðistofu Suðurlands við vinnu í Tanzaníu við byggingu 100 MW jarðgas virkjunar. Það eru bræðurnir Kristján og Rúnar Friðgeirssynir. Upphaflega stóð til að þeir yrðu til 15. febrúar n.k. en nú hefur samningur þeirra verið framlengdur til 18. maí. Auk þess að vinna sem eftirlitsmenn, hafa þeir tekið virkan þátt í hönnuninni á virkjuninni, þar sem upphaflegri hönnun var í ýmsu ábótavant. Í Tanzaníu búa um 42 milljónir manna, þar af um 6 milljónir í Dar es Salaam. Þrátt fyrir þennan fjölda er opinber heildar raforkuframleiðsla landsins aðeins um 750 MW sem er heldur minna en Kárahnúkavirkjun ein skilar. Þessi 100 MW sem nú bætast við eru því veruleg aukning. Auk þess á Jacobsen Electro AS sem hefur þá bræður á leigu nú í samningaviðræðum um byggingu á annarri virkjun sem verður um 150 MW drifin af hvort sem er jarðgasi eða þotueldsneyti.
Deila
|
Landslið Íslands í Tanzaníu |
| Sveitarfélagið Árborg- Útboð 12/01/2012
|
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið "VATNSVEITA ÁRBORGAR-MIÐLUNARGEYMIR BREYTINGAR"
Verkið felur í sér breytingar á lögnum í dælurými við miðlunargeymir Árborgar.
Breyta þarf eldri lögnum auk þess sem færa þarf rennslismæla og loka ásamt því að setja upp nýjar lagnir og smíða lagnasæti. Verkið þarf að vinna á þann hátt að sem minnst röskun verði á rekstri vatnsveitunar á framkvæmdartímanum.
Helstu magntölur eru:
- Lagnasuður 315mm lögn 17 stk
- Lagnasuður 225mm lögn 14 stk
- Lagnasuður 180mm lögn 6 stk
- Uppsetning á lokum 7 stk
- Uppsetning á renslismælum 2 stk
- Stálsæti undir lagnir 3 stk
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands frá og með miðvikudeginum 18.janúar. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Ingibjörgu í síma 412 6900, eða með tölvupósti til imba@verksud.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið útboðsgögnin send í tölvupósti.
Tilboðum skal skila á Verkfræðistofu Suðurlands, Austurvegi 1-5 2.hæð gengið inn á austurhlið, fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 8. febrúar 2012, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Framkvæmda og veitusvið Árborgar
Deila
|
|
| Vottun OHSAS 18001 28/10/2011
|
Verkfræðistofa Suðurlands hefur fengið vottun á heilbrigðis- og öryggisstjórnunarkerfi sitt.
Deila
|
BSI |
|
|