|
Fréttir |
|
| Undirsíður | ||||||||||
|
| Veður | |||
|
| Hrútfjallstindar 12/06/2010 | |
| Sami hópur og fór á Hvannadalshnjúk í fyrra mínus Páll og Rúnar (sem er í Afriku) að viðbættum Baldri Pálssyni drifu sig á Hrúfjallstinda með Einari Rúnar Sigurðsyni fjallaleiðsögumanni frá Hofsnesi. Þessi ferð var ákveðin í fyrra á toppi hnjúksins. Lagt var að stað um miðnætti og gengið inn að Skaftafellsjökli og meðfram honum í úfnum jökulruðningnum. Síðan var lagt á Hafrafellið og puðað upp brattann. Fljótlega skall á þoka svo að við sáum ekkert af hrygg Hafrafells. Eftir að hafa lækkað okkur niður í Sveltiskarð var haldið á flatari lendur og í um 1400 m.y.s. birti upp með fallegu útsýni á Skaftafellsfjöllinn og inn á Vatnajökul. Eftir 7 tíma og 20 mín var komið á topp Hátinds sem er hæsti tindur Hrúfjalltinda. Gott útsýni var á Hvanndalshnjúk, Dyrhamar, Sveinstind og Snæbreið ásamt því að Kverkfjöll, Snæfell og Þverártindsegg sáust vel. Var bundið fastmælum við Einar að fara með honum á Þverártindsegg næsta vor. Niðurferðin gekk vel og vorum við komnir á bílastæðið við Svínafellsjökul kl 12 þ.e. eftir 12 tíma ferð upp og niður. Nokkrar myndir eru á Hrútfjallstindar 2010 | |
| Mottumars á Verkfræðistofunni 19/03/2010 | |
| Nú stendur yfir mikil mottusöfnun á Verkfræðistofu Suðurlands. Alls hafa 6 af starfsmönnum safnað mottum með misjöfnum árangri það sem af er marsmánuði. Þetta hefur mælst misvel fyrir hja kvenstarfsmönnum og hafa menn hlotið ýmis nöfn eftir útilti mottanna. Nöfn eins og Vladimir, Mustafa og Hómer hafa heyrst manna á millum innan stofunar. Heyrst hefur einnig hjá viðskiptamönnum stofunnar að Pólverjum hafi fjölgað í starfsmannahópi stofunnar. Hægt er að styðja mottusöfnun Krabbameinsfélagsins á slóðinni http://karlarogkrabbamein.is/keppnin/keppandi?cid=1520 og hvetjum við alla til að gera það. Mottumenn. | |
| Menningar og óvissuferð 14/03/2010 | |
| Föstudaginn 12. mars fóru starfsmenn Verkfræðistofunnar í menningar og óvissuferð. Hellisheiðarvirkjun var skoðuð í upphafi. Almar Sigurðsson tók á móti okkur og sýndi virkni svæðisins og hvernig þessi mikla orka er nýtt til raforkuframleiðslu og í framtíðini til að hita upp vatn. Næst var haldið í Austur Meðalholt þar sem verið er að setja á stofn safn um íslenska byggingarlist á fyrri hluta síðustu aldar og verkmenningu tengda því tímabili. Hannes staðarhaldari og aðaldriffjöður safnsins sýndi okkur húsakost og áhöld. Síðast var Hólaborg, hesthús og reiðhöll Ingimars Baldvinssonar skoðað. Aðstaðan er hin glæsilegasta, tæki til ummönnunar hesta er þarna og margir hestar til að nota hana.
Að lokum var matast á veitingastaðnum Menam þar sem við nutum góðra veitinga eftir vel heppnaðan dag. Myndir |
|
| Námskeið í Granna 26/02/2010 | |
| Föstudaginn 26. febrúar var haldið námskeið í notkun Granna og fyrir starfsmenn og sveitarstjórnarmenn í uppsveitum Árnessýslu og Flóahrepp. Námskeiðið fór fram í tölvustofu Flúðaskóla þar sem aðstaða er mjög góð og tölvukerfið öflugt. Farið var yfir möguleika Granna, uppbyggingu kortakerfisins og gagnagrunna og hvernig best er að fá upplýsingar út úr kerfinu. Þeir sem vilja upplýsingar um Granna geta séð þær á www.granni.is |
|
| Skyndihjálp 09/02/2010 | |
| Þriðjudagsmorguninn 9. febrúar var haldið skyndihjálparnámsskeið fyrir starfsmenn Verkfræðistofunnar. Leiðbeinandi var Viðar Arason sjúkraflutningsmaður og fyrrverandi mælingamaður á Verkfræðistofunni. Námsskeiðið var haldið sem hluti af innleiðingu OHSAS 18001 öryggis og heilbrigðis vottun sem unnið að þessa dagana. Þessi innleiðing er hluti af vinnu við innleiðingu ISO9001 gæðastaðals og ISO14001 umhverfisstaðals ásamt OHSAS 18001 eins og áður er getið. Námsskeiðið tókst með afbrigðum vel enda þekkir leiðbeinandinn nemendurna vel og gat leiðbeint þeim eftir getu hvers og eins. Sjá myndir |
|
| Gígjökull 27/11/2009 | |
| Föstudaginn 27. nóvember fóru Páll og Sveinn mælingamaður ásamt Ármanni Inga fjórhjólseiganda að Gígjökli. Erindið var að mæla staðsetningu á sporði jökulsins fyrir jöklarannsóknafélagið en þeir halda utan um breytingar á framskriði jöklanna. Ferðin var einnig farin til að prófa Trimble VX alstöð við erfiðar aðstæður. Ætlunin var að ferja alstöðina að jöklinum á fjórhjólinu eftir vatnsborði lónsins. Ekki gekk sú ferð upp þar sem vatnsbakkinn var mjög torfær og urðum við frá að snúa. Ármann kallaði á félaga sína í Björgunarfélagi Árborgar sem komu umsvifalaust með bát og ferjuðu mælingamenn yfir lónið. Mæling gekk vel þegar yfir var komið, sporðurinn mældur með GPS tæki og hluti jökultungunnar skannaður með VX stöðinni. Myndir |
|
| Ný símanúmer 01/10/2009 | |||||||||||||||||||||||||||||||
| Þessa dagana er verkfræðistofan er að taka upp nýtt símakerfi sem byggist á IP tækni. Símstöðin er sameiginleg með EFLU í Reykjavík. Nýtt aðalsímanúmer er 412 6900 en 482 3900 verður áfram virkt. Símsvörun verður eftir sem áður á Verkfræðistofunni en ný bein númer eru tekin upp samhliða þessum breytingum og eru þau:
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
| Hvannadalsnjúkur 13/06/2009 | |
| Aðfararnótt laugadagsins 13 júní lögðu fjórir starfsmann Verkfræðistofunnar, Bárður, Gumundur, Páll og Rúnar ásamt tveimur áhangendum, Gottskálk og Jósef til atlögu við Hvanndalshnúk. Ferð þessi var ákveðin snemma í vor og undirbjuggu menn sig vel undir hana með fjallgöngum og annarri líkamsrækt. Einar Sigursson í Hofsnesi sem áður hefur leitt hópa á vegum Verkfræðistofunnar var fenginn til leiðsagnar. Ekki var ljóst hvernig ferðatilhögun yrði fyrr en um kl 19 á föstudagskvöldinu þegar veðurspá lá fyrir og Einar sá upp á jökul. Ákveðið var að leggja af stað um miðnætti og fara Sandfellsleiðina og ná þannig að nýta kaldasta hluta næturinnar á snjó og sólin væri komin vel upp þegar upp væri komið. Ferðin gekk í alla staði vel, hópurinn samstilltur og ákveðinn í að láta allt ganga upp. Leiðin er miserfið, fyrstu 700 metarnir í hæð eru brattar og stundum lausar brekkur en með vel afmarkaðri gönguleið. Þaðan upp a jökulröndinn er melar tiltölulega jafn halli. Upp jökulinn frá 1100m upp í 1800m er ein löng og leiðinleg brekka sem gengin er í línu. Hnjúkurinn blasti við okkur, stundum í þoku en líka hreinn. Gengið var hratt yfir gíginn að hnjúknum og eftir smá pásu var haldið af stað upp búnir ísbroddum og ísöxi. Á toppnum stóðum við síðan tíu mínútur yfir sex, sem sagt sex tímar og fimmtán mínútur á leiðinni upp. Hnúkurinn var nokkuð hreinn meðan við stoppuðum þar og fögnuðum, mynduðum og gleymdum öllu púlinu. Síðan var haldið niður og gekk það vel eins og annað í þessari ferð. Komið var í bíl klukkan rúmlega tíu, sem sagt tíu tímar og fimmtán mínútur sem ferðin tók í heild sinni. Nokkrar myndir eru á Hnjúkur 2009 | |
| Rennslismælingar í álveri Alcoa 09/06/2009 | |
| Í síðustu viku vann Verkfræðistofa Suðurlands að rennslismælingum í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Verið var að kanna rennsli og nýtni loftræstikerfa álversins en í stóru álveri sem þessu skiptir miklu máli að loftræstikerfin virki rétt. | |
| Sauðburði lokið 26/05/2009 | |
| Sauðburði er lokið í Selási í Holtum hjá Jóni Ágústi, einum starfsmanna okkar. Sjá má fleiri myndir undir myndir hér til hliðar. | |
| Lekaleit í Flóahreppi 25/05/2009 | |
| Nú stendur yfir umfangsmikil lekaleit á vatnsveitunni í Flóahreppi. Nokkrir stórir lekar hafa fundist en Verkfræðistofa Suðurlands hefur unnið þetta ásamt umsjónarmönnum vatnsveitunnar. Rennslismælir í eigu verkfræðistofunnar hefur verið mikið notaður í þessari vinnu og hefur hann komið að mjög góðum notum. Vatnsveita Flóahrepps nær yfir stórt svæði og kemur það sér því vel að vera með rétta búnaðinn til að flýta fyrir.
Myndir frá lekaleitinni eru hér |
|
| Hjólað í vinnuna 22/05/2009 | |
| Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu "Hjólað í vinnuna". Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta, en þetta fer fram dagana 6. - 26. maí. Verkfræðistofa Suðurlands sendi eitt 10 manna lið til keppni og er óhætt að segja að keppnisandinn sé mikill. | |
| Jarðvegsrannsókn vegna brúar yfir Þjórsá. 17/03/2009 | |
| Vegna fyrirhugaðar brúar yfir Þjórsá við Árnes var framkvæmd óvenjuleg jarðvegsrannsókn. Verkfræðistofa Suðurlands og Verkfræðistofan EFLA tóku að sér að rannsaka botnlög undir Þjórsánni. Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hve djúpt er á fastan botn og hvernig jarðlög eru undir fyrirhugaðri brú. Hönnunardeild Vegagerðarinnar er að hanna brúnna og er hugmyndin að brúin verði í fjórum höfum þ.e. landstólpar og þrír miðstólpar undir brúnni. Vegna aðstæðna á þessum stað er fyrirhugað að brúin verði grunduð á súlum. Verkfræðistofa Suðurlands og EFLA fengu aðstoð frá Nesey ehf við þetta óvenjulega starf og þökkum við Vigni fyrir dygga aðstoð. Myndir frá rannsókninni eru hér |
|
| Nýtt og öflugt verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki 10/10/2008 | |
| Nýtt verkfræðifyrirtæki hefur orðið til við sameiningu fjögurra verkfræði- og ráðgjafarstofa. Það tekur formlega til starfa undir heitinu EFLA þann 10. október 2008. Verkfræðistofan Afl, Línuhönnun, Raftæknistofan (RTS) og Verkfræðistofa Suðurlands mynda EFLU. Verkfræðistofa Suðurlands verður sjálfstætt dótturfélag EFLU. EFLA er alhliða verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki, öflugt þekkingarfyrirtæki, sem veitir vandaða þjónustu í tugum þjónustuflokka. Það býr yfir víðtækri og traustri fagþekkingu og hefur á að skipa um 280 starfsmönnum, þar af um 50 starfsmönnum í erlendum dótturfyrirtækjum. Fyrirtækið sinnir fjölda ólíkra verkefna á hverjum tíma, á Íslandi og víða um heim. Það leggur ríka áherslu á nýsköpun og rannsóknir og starfar samkvæmt ítrustu gæðakröfum og á vistvænum vegum. Nýja heimasíðu er að finna undir www.efla.is |
|
| Útboð fráveitu Árnesi 21/08/2008 | |
| Skeiða- og Gnúpverjahreppur óskar eftir tilboðum í frárennslislagnir. Verkið felst í grafa fyrir lögnum og leggja sniðræsi, stofnlagnir, götulagnir, brunna, götuniðurföll og koma fyrir rotþró. Verkið er skipt í fjóra áfanga. Nú eru boðnir út áfangi eitt og tvö. Í fyrsta áfanga felst að grafa fyrir og leggja sniðræsi meðfram Kálfá. Þessu sniðræsi er ætlað að taka við þeim skolpútrásum sem nú eru leiddar í Kálfá. Koma skal fyrir nýrri rotþró sem þjónað getur allri byggðinni. Í öðrum áfanga felst að grafa fyrir lögnum, brunnum og niðurföllum í götunni Hamragerði. Ganga skal frá heimæðum inn á lóðir og tengja núverandi hús inn á nýja tvöfalda frárennslislögn. Einnig er í þessum áfanga lögn vestur að stofni lögðum í fyrsta áfanga. Reiknað er með að gatan hafi áður verið jarðvegsskipt á fastan botn. Í öðrum áfanga er ekki miðað við að yfirborð götunar verði tekið (þ.e. ekki malbik né efra burðarlag) því er einungis miðað við að sandföng niðurfalla verði frágengin í réttum hnitum og tengd við regnvatnslögn. Helstu magntölur eru: - Gröftur.............................5.076 m3 - Fleygun/sprengingar...............692 m3 - Fyllingar burðarhæft efni...........1.559 m3 - Fráveitulagnir......................1.431 m - Rotþró..............................41.000 L Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Finn í síma 482 3900, eða með tölvupósti til finnur@verksud.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið úthlutað aðgangi að FTP svæði Verkfræðistofunnar þar sem gögnin eru vistuð. Verklok eru áætluð 29. nóvember. 2008. Opnun tilboða fer fram mánudaginn 1. September 2008, kl. 11.00 á Verkfræðistofu Suðurlands. Útboðsgögn |
|
| Útboð á byggingu dælustöðvar 07/07/2008 | |
| Framkvæmda og veitusvið Árborgar, Austurvegi 67 Selfossi, óskar eftir tilboðum í byggingu dælustöðvar hitaveitu á Ósabotnasvæði í Hraungerðishreppi. Um er að ræða byggingu 80 fermetra steinsteypts húss með léttu þaki, einangrað og múrklætt að utanverðu. Einnig vinna við stofnlagnir, raflagnir, hreinlætiskerfi, loftræsikerfi og vinna við uppsetningu dælubúnaðar.
Helstu magntölur eru: - Steinsteypa 49 m3 - Mótasmíði 390 m2 - Léttar þakeiningar 80 m2 - Einangrun og múrklæðning 150 m2 - Einangruð hitaveiturör D250/DN200 72 m - Uppsetning og tenging á 1500 kg dælum 2 stk. Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. nóvember. 2008. Vinnu við stofnlagnir skal lokið 1. október 2008. Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands frá og með mánudeginum 7. júlí. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Evu í síma 482 3900, eða með tölvupósti til eva@verksud.is og gefa upp nafn, heimilsfang, síma og netfang og fá í kjölfarið úthlutað aðgangi að FTP svæði Verkfræðistofunar þar sem gögnin eru vistuð. Tilboð verða opnuð hjá Framkvæmda- og veitusviði Árborgar, Austurvegi 67 Selfossi, þriðjudaginn 22. Júlí 2008, kl 11:00. Útboðsgögn |
|
| GATNAGERÐ HEIÐARGERÐI 2008. 27/06/2008 | |
| Flóahreppur óska eftir tilboðum í verkið GATNAGERÐ HEIÐARGERÐI 2008. Verklok eru 1. október 2008 |
|
| ENDURGERÐ TRYGGVAGÖTU 02/06/2008 | |
| Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í gatnagerð ENDURGERÐ TRYGGVAGÖTU. Verklok eru 1 október 2008 Helstu magntölur eru: |
|
| Gatnagerð Hveragerði 2008 02/06/2008 | |
| Hveragerðisbær auglýsir hér með útboðið Gatnagerð Hveragerði 2008.
Verkið felst í endurbyggingu á götuni Þórsmörk, sem er eldri gata í miðbæ Hveragerðis. Einnig að lengja götuna Þelamörk til auturs. Jarðvegsskipta skal götustæði og stíga, og fylla í með burðarlagi þar sem þess er þörf. Leggja skal frárennslisstofna í götu, leggja heimæðar inn á lóðir, gera niðurföll og leggja að þeim regnvatnslagnir. Leggja skal hitaveitu, OR-gagnaveitulagnir, símalagnir og aðstoða við lagningu rafmagns. Hæðarsetja akbrautir og malbika. Steypa kantsteina og malbika gangstétt. |
|
| Fréttatilkynning 30/05/2008 | |
| Samþykkt hefur verið viljayfirlýsing um samruna Verkfræðistofunnar Línuhönnunar auk Verkfræðistofu Suðurlands, RTS Verkfræðistofu og Verkfræðistofunnar Afls. | |
| Suðurlandsskjálfti 29/05/2008 | |
| Jarðskjáfti varð á Suðurlandi. Upptök skjálftans eru talin vera á milli Hveragerði og Selfoss. Stærð skjálftsns mældist 6.3 á Richter.
Myndir frá skjálftanum eru hér |
|
| Fjölskylduferð 1. maí 2008 01/05/2008 | |
| Fimmtudaginn 1. maí 2008 fór hluti starfsmanna verkfræðistofunnar í ferð umhverfis Reykjanes. Haldið var frá Selfossi og var fyrsta stopp í Strandarkirkju þar sem vip fengum leiðsögn heimamanna. Áð var skamma stund í Herdísarvík og þaðan haldið til Krýsuvíkur og hverasvæðið skoðað og kíkt á nestið við Krýsuvíkurkirkju. Þar næst var tökustaður Arnarins skoðaður en Bárður fór með stórt hutverk illmennis í myndinni. Eftir viðkomu í Grindavík var haldið að Reykjanesi þar sem svæðið var skoðað. Garðskagi var skoðaður eftir ýmsar krókaleiðir á gamla varnarsvæðinu. Ferðin endaði síðan með sameiginlegri mátíð á Ruby Thuesday í Reykjavík.
Myndir úr ferðinni eru hér |
|
| Mælingamenn í kröppum dansi. 18/04/2008 | |
| Mælingamenn Verkfræðistofu Suðurlands, voru í síðustu viku að störfum við mælingar í og við Þjórsá. Markmið mælinganna var að mæla fall Þjórsár á milli jarðamarka, í tengslum við fyrirhugaðar virkjanir í Þjórsá.
Hægt er að skoða fleiri myndir hér |
|
| Útboð bílastæði og göngustígar 18/03/2008 | |
| Hveragerðisbær auglýsir hér með útboðið Bílastæði og göngustígar Hveragerði 2008. Verkið felst í gerð götu og bílastæða við leikskóla við Breiðumörk og göngustíga við Kjarrheiði ? Valsheiði og milli Réttarheiði og Finnmerkur. Jarðvegsskipta þarf að mestu leiti plön og leggja fráveitulagnir. Stígar eru að mestu jarðvegsskiptir. Rétta þarf bílastæði, götu og stíga af með neðra burðarlagi, hæðarsetja og malbika. Steypa þarf kantsteina með plönum ásamt því að þökuleggja. Helstu magntölur eru: - Neðra Burðarlag 2956 m3 - Jöfnunarlag 4110 m2 - Malbikun 3951 m2 Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Nönnu í síma 482 3900, eða með tölvupósti til nanna@verksud.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið úthlutað aðgangi að FTP svæð Verkfræðistofunnar þar sem gögnin eru vistuð. Verklok eru áætluð 14. ágúst 2008. Opnun tilboða fer fram miðvikudaginn 26. mars 2008, kl. 11.00 á skrifstofum Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2. Útboðsgögn |
|
| Sameining 29/02/2008 | |
| Ákveðið hefur verið að Línuhönnun (LH) og Verkfræðistofa Suðurlands (VS) á Selfossi renni saman. Þessi ákvörðun hefur verið staðfest á hluthafafundum beggja fyrirtækjanna. Form sameiningar verður með þeim hætti að núverandi hluthafar VS eignast hlut í LH, og verður VS sem fyrr sjálfstætt starfandi félag nú í eigu Línuhönnunar. Þjónusta beggja fyrirtækjanna verður áfram með sambærilegu sniði og áður. LH og VS hafa verið í nánu og farsælu samstarfi um árabil. Hjá LH starfa um 135 starfsmenn og 16 starfsmenn hjá VS. LH var stofnað árið 1979 og er nú eitt af leiðandi verkfræðifyrirtækjum landsins (www.lh.is). VS á sér enn lengri sögu, var stofnað á gosárinu 1973 og hefur því þjónað Sunnlendingum með farsælum hætti í 35 ár (www.verksud.is). VS er öflugasta verkfræðistofan á Suðurlandi. Línuhönnun og Verkfræðistofa Suðurlands munu áfram kappkosta að þróa og efla sína þjónustu til hagsbóta fyrir viðskiptavini fyrirtækjanna og samfélagið. Á myndinni eru / frá vinstri til hægri: María Bjarnadóttir VS, Kristbjörn Guðmundsson VS, Guðmundur Hjaltason VS, Guðmundur Þorbjörnsson LH, Erlingur Ingvason VS, Hafsteinn Helgason LH, Páll Bjarnason VS. |
|
| Nýr starfsmaður 14/01/2008 | |
| Í byrjun janúar hóf Garðar Garðarsson störf á verkfræðistofunni. Garðar er stúdent frá FSU 2004 og lauk vélaverkfræði frá Háskóla Ísands 2007. Garðar vann á Austurlandi frá skólalokum til síðustu áramóta. Garðar mun vinna við hönnun lagnakerfa ásamt öðrum verkefnum tengdum vélaverkfræði. | |
| Mælingaverkfræðingur 05/11/2007 | |
| Í byrjun október hóf störf á Verkfræðistofu Suðurlands ehf. mælingaverkfræðingur frá Þýskalandi, Kathi Schwarzkopp. Kathi útskrifaðist frá University of Applied Sciences í Berlín í júlí síðastliðinn. Áður hafði hún lært mælingafræði og starfað sem mælingamaður í Þýskalandi og Albaníu. Kathi mun starfa við landmælingar og útreikninga en það er stöðugt vaxandi starfsemi Verkfræðistofunnar. | |
| Útboð fyrir Vegagerðina 09/10/2007 | |
| Verkfræðistofa Suðurlands, f.h. Vegagerðarinnar Breiðumýri 2, Selfossi býður út verkið "Viðbygging og viðhald 2007". Verkið felst í viðbyggingu og viðhaldsvinnu á skrifstofuhúsnæði Vegagerðarinnar Breiðumýri 2. Framan við anddyri skrifstofubyggingar skal byggja 22,4 m2 nýtt anddyri og skrifstofu. Einnig er um að ræða breytingar innanhúss s.s. saga burt veggi, færa afgreiðslu, eldhús og innrétta nýja skrifstofu. Viðhaldsvinna felst aðallega í því að skipta um gler í vestur og norður hlið núverandi skrifstofuhúss. Verktaki skal fjarlægja gler úr gluggum, hreinsa fög og setja nýtt sólstopp gler brons (brúnt) K-gler. Gera má ráð fyrir einhverjum skemmdum í gluggastykkjum (fúi) sem verður lagfært í tímavinnu. Einnig skal fjarlægja spjald úr glugga á neðri hæð á suðurhlið og setja tvær rúður í staðinn Verklok eru 29. Febrúar 2008. Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands Útboðsgögn frá og með 15 október. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Rúnar í síma 482 3900, eða með tölvupósti til runar@verksud.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið úthlutað aðgangi að því svæði heimasíðunnar, þar sem gögnin eru vistuð. Opnun tilboða fer fram föstudaginn 2. nóvember 2007, kl. 11.00 á Verkfræðistofu Suðurlands, Austurvegi 3-5 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. |
|
| Útboð á byggingu leikskóla 11/06/2007 | |
| Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í viðbyggingu við Leikskólann á Stokkseyri og endurbótum á núverandi húsi. Núverandi leikskóli er timburhús byggt á steyptum sökkli. Þetta hús verður endurnýjað að hluta og breytingar munu eiga sér stað á innra skipulagi. Sunnan við húsið verður reist 182 m2 viðbygging og 30,6 m2 tengibygging, vestan við húsið kemur 8,4 m2 viðbygging sem er anddyri. Í útboði er miðað við að viðbygging sé einingahús en heimilt er að bjóða annað. Í öllum tilfellum leggur verktaki fram burðarvirkis og frágangs teikningar. Skipulagi lóðar hefur verið breytt og tekur verktaki að sér að framkvæma þær breytingar. Verklok eru 8. ágúst 2008 Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands frá og með 18 júní. Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Ástu Maríu í síma 482 3900, eða með tölvupósti til asta@verksud.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið úthlutað aðgangi að því svæði heimasíðunnar, þar sem gögnin eru vistuð. Opnun tilboða fer fram fimmtudaginn 28. júní 2007, kl. 11.00 á skrifstofum Sveitarfélagsins Árborg, Austurvegi 67 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska |
|
| Iðnaðarsvæði Flúðum, fráveita og gatnagerð 14/05/2007 | |
| Hrunamannahreppur óskar eftir tilboðum í verkið: Iðnaðarsvæði Flúðum, fráveita og gatnagerð, áfangar I og II. Verklok áfanga I. eru 3 júlí 2007. Verklok áfanga II. eru 12. október 2007. Helstu magntölur eru: Gröftur 17.500 m3 Fyllingar 22.300 m3 Fráveitulagnir 3.100 m Vatnslagnir 650 m Hitaveitulagnir 650 m Útboðsgögn verða afhent hjá Verkfræðistofu Suðurlands, Austurvegi 3-5, frá og með mánudeginum 14. maí. gegn 5000 kr. skilagjaldi. Tilboðum skal skila til skrifstofu Hrunamannahrepps, Akurgerði 6, Flúðum, fyrir kl. 10:00 mánudaginn 29. maí 2007, en þá verða þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. |
|
| Gatnagerð Ólafsvellir áfangi II 07/05/2007 | |
| Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í verkið gatnagerð Ólafsvellir áfanga II. Verklok eru 15 október 2007. Helstu magntölur eru: Gröftur 2000 m3 Fleygun/sprengingar 350 m3 Fyllingar 3450 m3 Fráveitulagnir 775 m Vatnslagnir 330 m Hitaveitulagnir 290 m Malbikun 2000 m2 |
|
| Opnun tilboða í Gatnagerð 13/02/2007 | |
| Útboðið Gatnagerð í Hveragerði 2007 var opnað kl. 11:00 í dag að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óskuðu á skrifstofu Hveragerðisbæjar. Við viljum þakka þeim sem tóku þátt í útboðinu Gatnagerð í Hveragerði 2007. Eftir yfirferð er stað tilboða svona: Kostnaðaráætlun 137.217.975 1 Klæðning ehf 99.019.000 72,16% 2 Gröfumenn ehf 103.315.200 75,29% 3 Ræktunarmiðstöðin 105.579.055 76,94% 4 Burkney ehf 116.786.950 85,11% 5 Vélgrafan ehf 122.964.560 89,61% 6 Eining sf 125.654.735 91,57% 7 Lækjagljúfur ehf 126.748.200 92,37% 8 Eðalverk ehf 133.945.450 97,62% 9 Ásmundur Sigurðsson 136.000.000 99,11% 10 Ræktunarsamb. Flóa og Skeið 144.057.000 104,98% 11 Jarðkraftur ehf 149.261.150 108,78% 12 Heimir og Þorgeir ehf 156.985.810 114,41% |
|
| Gatnagerð Hveragerði 2007 29/01/2007 | |
| Hveragerðisbær hefur auglýst útboðið Gatnagerð Hveragerði 2007. Verkið felst í nýbyggingu á götunum Smyrlaheiði, Gróðurmörk og Dalsbrún. Yfirborðsfrágang á Summumörk þ.e leggja niðurfallalögn og setja niðurföll, malbikun og kantsteinar. Endurbyggingu á Klettahlíð sem er gömul gata og frágangur við Finnmörk. Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands. Útboðsgögn Þeir sem hyggjast gera tilboð í verkið skulu hafa samband við Ástu Maríu í síma 482 3900, eða með tölvupósti til asta@verksud.is og gefa upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fá í kjölfarið úthlutað aðgangi að því svæði heimasíðunnar, þar sem gögnin eru vistuð. Verklok eru áætluð 01. janúar 2008. Opnun tilboða fer fram þriðjudaginn 13. febrúar 2007, kl. 11.00 á skrifstofum Hveragerðisbæjar að Sunnumörk 2. | |
| Sýnatökur í Ölfusá 06/12/2006 | |
| Verkfræðistofa Suðurlands tók að sér sýnatökur fyrir kólígerlamælingar úr Ölfusá vegna væntanlegrar hreinsstöðvar. Tekinn voru sex snið yfir ánna, með þremur sýnum í hverju sniði. Sniðinn voru frá Geitanesi og niður að Kotferju. Einnig voru tekin sýni úr Ölfusárós, við útrás SS, við útrás sniðræsis við flugvöll ásamt sýni fyrir ofan efri Laugardælaeyju sem notað er sem viðmið þar sem það er fyrir ofan byggðina við Selfoss. | |
| Kárahnjúkar 18/10/2006 | |
| Starfsmenn stofunar brugðu sér austur á land til að skoða virkjanaframkvæmdir. Farið var á austur 18 okt og ekið til Reyðarfjarðar og kíkt yfir álverið. Einnig voru Fáskrúðsfjarðargöngin skoðuð. Næst var hreindýrahjörð á Fagradal tekin út og að því loknu farið í stöðvarhúsið í Fljótsdalnum. Í dagslok var fjósið á Ketilsstöðum skoðað. Um kvöldið var snæddur kvöldverður á Hótel Héraði.
Daginn eftir var ekið upp í Kárahnjúka og var hópurinn í öruggum höndum hins vaska rútubílstjóra og leiðsögumanns Jóns Guðmundssonar frá Seyðisfirði. Stíflan og lónið voru skoðuð. Hádegismatur var snæddur í aðgöngum 2 og síðan haldið upp að Eyjabökkum, þar sem Verkfræðistofa Austurlands kynnti okkur framkvæmdirnar þar. Að þessu loknu ók Jón okkur um Egilsstaði og kynnti byggingaframkvæmdir. Hægt er að mæla með Jóni sem leiðsögumanni þar sem hann er hafsjór af fróðleik um menn og málefni jafn á héraði og fjörðunum.
Myndir |
|
| Laxárgljúfur 26/08/2006 | |
| Laugardaginn 26 ágúst héldu starfsmenn verkfræðistofunar í gönguferð niður með Laxárgljúfrum. Gengið var Gullhreppsmeginn með útsýni yfir hinn Gullhreppinn. Veður var hagstætt, undanvindur og bjart. Sumir reyndust hraðskreiðari en aðrir en það kom ekki að sök, því allir skiluðu sér í rútuna við Hrunakrók eftir að hafa vaðið Stóru Laxá. Þaðan var haldið í hressingu í sumarhúsi Páls framkvmdastjóra í Hlíð og að því loknu ekið á Selfoss og haldin grillveisla. | |
| Róm 15/10/2005 | |
| Daga 6-10 október fór stór hluti starfsmanna Verkfræðistofunnar ásamt fylgdarliði í árshátíðarferð til Rómar. 25 manna hópur lagði upp frá Keflavík upp úr hádegi á fimmtudegi og lent var í Róm um kvöldið eftir 4 klst flug. Föstudagur og laugardagur voru notaðir í sameiginlegar skoðunarferðir, fyrst í Vatikanið á föstudegi óguðlega snemma fyrir okkur á öðru tímabelti en síðan á sögustaði Rómar á laugardegi. Veður var gott í byrjun skoðunarferða en síðan byrjaði að rigna og svo rigndi og rigndi þar til allir höfðu gefist upp og keypt regnhlífar af götusölum á okurverði en þá stytti upp. Árshátíðarkvöldverður var á laugardagskvöldi á litlum stað sem heitir Enoteca Capranica sem er nálægt Pantheon. Allt það kvöld tókst vel, kvöldverðurinn stóð í fjórar tíma, matur og þjónusta frábær. Sunnudag og mánudag voru notaðir í skoðun á borginn, nú í frábæru veðri og það rann upp fyrir okkur að fleira sást en regnhlífar í Róm. Einhverjir notuðu tímann til að versla en það voru fáir enda skynsamt fólk sem vinnur á Verkfræðistofunni. Það rann upp fyrir okkur að Róm var ekki reist á einum degi og aðdáun á þeim sem reistu þessi mannvirki fyrir 2000 árum jókst stórkostlega. Myndir | |
| Darfur 01/07/2005 | |
| Rúnar Jón Friðgeirsson sem verið hefur starfsmaður Verkfræðistofu Suðurlands hefur fengið frí til að starfa fyrir alþjóða Rauða Krossinn í Darfur. Rúnar fór til Darfur seinni hluta júní og starfar við uppbyggingu vatns og fráveitna sem er ekki svo ósvipað því sem hann starfaði við hér á stofunni. Rúnar hefur skrifað pistla á netið sem hægt er að nálgast á: Blogsíða Rúnars | |
| Borgarafundur 17/03/2005 | |
| Borgarafundur vegna aðalskipulags fyrir Sveitarféalgið Árborg var haldinn í Hótel Selfoss fimtudaginn 17. mars 2005. Valdís Bjarnadóttir arkitekt frá Frá vinnustofunni Þverá sem vinna við gerð skipulagsins kynnti þær hugmyndir sem nú liggja fyrir. Kynnt önnur drög að skipulaginu sem dreift verður til hagsmunaaðila til að fá athugasemdir þeirra ásamt kynningu til íbúa á borgarfundi.
Eftir kynningu Valdísar voru fyrirspurnir sem komu að ýmsum þáttum skipulagsins. Framtíð flugvallar, staðsetning kirkjugarðs, íbúabyggð austan Hrefnutanga og lega Suðurlandsvegar voru flestum hugleikin ásamt ýmsum öðrum málum. Skipulagshöfundar og aðilar starfshóps svöruðu spurningum að bestu getu.
Myndir |
|
| Útboð fyrir Landgræðslu ríkisins 15/03/2005 | |
| Nú nýverið vann Verkfræðistofa Suðurlands útboðsgögn fyrir Landgræðslu ríkisins að Gunnarsholti. Verkið tekur til malbikunar á plönum og lagningar klæðningar á vegi við Gunnarsholt og uppsteypu á þvottaplani og olíuplani ásamt sandþró og olíu- og sandskilju. Nánar má lesa um verkið á heimasíðu Framkvæmdarsýslu ríkisins: Útboð Gunnarsholti |
|
| Skrifstofuhótel 24/02/2005 | |
| Í dag var opnað skrifstofuhótel í húsnæði Verkfræðistofunnar í samvinnu við Sunnan3 sem er samvinnuverkefnin sveitarféalganna Árborgar, Ölfus og Hveragerðis. Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon kynnti sér aðstöuna og opnaði hana formlega. Skrifstofuhótel er aðstaða með háhraða með nettengingu sem hægt er að leigja einstaka daga eða ákveðna daga viku. Notendur koma með eigin fartölvur og fá nettengingu og aðgengi að prenturum, aðstöðu í opnu skrifstofurými ásamt kaffistofu. Eftir opnun og kynningu fengu gestir veitingar og gátu kynnt sér aðstöðuna. Áhugasamir geta kynnt sér aðstöuna föstudaginn 25. febrúar milli kl. 10 og 18. Einnig er hægt að hafa samband við Pál Bjarnason í síma 482 3900 aðra daga. | |
| Kynning á drögum að matsáætlun 18/02/2005 | |
| Áætlað er að halda áfram með námuvinnslu á syðri brún Ingólfsfjalls í landi Þórustaða.
Skipulagsstofnun hefur úrskurðað námuvinnsluna matsskylda samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr 106/2000.
Vinna við undirbúning er hafin há Magnúsi Ólasyni tæknifræðingi og Verkfræðistofu Suðurlands ehf. og eru drög að matsáætlun til kynningar á heimasíðu Verkfræðistofu Suðurlands, www.verksud.is frá föstudeginum 18. febrúar 2005.
Hægt er að koma ábendingum og athugsemdum við drög til Magnúsar Ólasonar mako@simnet.is fyrir 4. mars 2005.
Tillag að matsáætlun Námusvæði Yfirlitskort |
|
| Aðalskipulagsvefur 12/12/2004 | |
| Verkfræðistofan hefur sett upp vef vegna vinnu við gerð nýs aðalskipulag fyrir Sveitarfélagið Árborg. Á vefnum er að finna upplýsingar um stöðu vinnunnar við gerð skipulagsins, einnig er þar að finna uppdrætti og greinargerðir. Hægt er að leggja fram fyrirspurnir og koma með ábendingar til höfunda skipulagsins, einnig er hægt að taka þátt í umræðum og viðra skoðanir um einstaka þætti skipulagstillagnanna. Á skipulagsvef | |
| Kárahnjúkar 2004 15/10/2004 | |
| Föstudaginn 15. október fóru starfsmenn verkfræðistofunnar í vísinda ferða að virkjanasvæðinu við Kárahnjúka. Flogið var til Egilsstaða og haldið þaðan í Végarð og kynning Landsvirkjunar á framkvæmdunum skoðuð. Framkvæmdir við stöðvarhús voru skoðaðar í beinu framhaldi undir leiðsögn Gunnars starfsmanns Kárahnjukar Supervision JV. Meðal annars var farið í gegnum frárennslisgöngin inn í stöðvarhúshvelfinguna sem er komin vel áleiðis. Eftir stöðvarhúsið var haldið til Egilsstaða þar sem gist var á Hótel Héraði ásamt því að borða hreindýra og lambasteik.
Á laugardagsmorgni var haldi upp á Fljótsdalsheiði að vinnusvæðinu við Kárahnjúk. Á Sandfelli tók Sigfinnur Snorrason starfsmaður Línuhönnunar og Selfyssingur á móti okkur og sýndi okkur allt vinnusvæðið. Við yfirferðina sást greinilega hversu gríðarstórt þetta verkefni er. Eftir að gljúfrið og færibandavirkið var skoðaða var borðað í þjónustumiðstöð Landsvirkjunar. Á leiðinni til baka var komið við hjá Suðurverk og Desjarárstífla skoðuð. Áður en flogið var heim á leið var rennt á Reyðarfjörð og litið yfir athafnasvæði Alcoa. Sjá myndir |
|
| Nýr starfsmaður 05/10/2004 | |
| Jón Ágúst Reynisson landfræðingur hefur hafið stöf á Verkfræðistofunni. Jón Ágúst mun fyrst um sinn vinna við landupplýsingakerfi fyrir sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus. Einnig mun Jón Águst sinna forritun og uppsetningu heimasíðna þar sem notað er HTML og Coldfusion sem er skipanamál sem notað er til samskipta við gagnagrunna og til útreikninga. | |
| Grunnstöðvamælingar 14/08/2004 | |
| Undanfarnar tvær vikur hafa Jakob og Bárður unnið við mælingar á Grunnstöðvaneti Landmælinga Íslands. Verkfræðistofan tók þátt í þessum mælingum í samvinnu við Sveitarfélagið Árborg, Hveragerði og Sveitarfélagið Ölfus. Á meðan mælingaflokkar í verkefninu voru á suðvestur horni landsins mældi Páll fastmerki sveitarfélaganna til að hægt verið að tengja þau nýjum hnitum eftir að reiknað hefur verið úr mælingunum. Mælingarnar voru unnar á tímabilinu 4-14. ágúst, byrjuðu á vesturlandi og síðan var farið norður og austur og endað á suðvesturlandi.
Núverandi mælistöðvar sem eru 119 talsins voru mældar árið 1993, en vegna þess hve hreyfing landsins er mikil er talið nauðsynlegt að mæla allt netið á 10 ára fresti til að tryggja áreiðanleika og nákvæmni þess.
Sjá: Landmælingar Íslands |
|
| Golfmót VS 2004 16/06/2004 | |
| Golfmót Verkfræðistofu Suðurlands fór fram miðvikudaginn 16. júní 2004 á Svarfhólsvelli. Spilað var með svokölluðu Texas scarmble fyrirkomulagi þar sem tveir spila saman og ræður betra högg þeirra sem saman spila. Þáttakendur í mótinu voru stafsmenn Verkfræðistofunnar ásamt ýmsum samstarfsmönnum. Mótið fór fram í góðu veðri og tókst vel í alla staði, allir byrjuðu kl 14.14 og byrjuðu keppendur að koma í hús um kl 17. Eftir það var tekið hraustlega til matar síns og verðlaun voru afhent. Þau sem unnu mótið voru Erling Pedersen og Ingigerður Erlingsdóttir | |
| Rennslismælir 14/06/2004 | |
| Verkfræðistofa Suðurlands ehf hefur keypt færanlegan rennslismæli sem hægt er að spenna utaná lagnir. Mælirinn er að gerðinni PORTAFLOW 300 og getur hann mælt rennsli lagna frá 13 - 1000 mm í þvermál ásamt því að hægt er að velja mismunandi efnisgerð lagna. Hægt er að mæla rennsli lagna með mismunandi vökava t.d. vatn, frostlög, olíu, glussa og fleira. Auðvelt er að setja upp mælinn láta hann safna gögnum yfir ákveðinn tíma. | |
![]() |
| Heimasíður | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|