|
GPS mælingar |
|
| Undirsíður | ||||||||||
|
| Veður | |||
|
|
Vorið 2003 keypt síðan Verkfræðstofan Trimble 5700 GPS alstöð frá Timble. Um er að ræða sambærilegt tæki og keypt var 1997 en tæki og hugbúnaður öflugri og hraðvirkari. Með þessum kaupu jók stofan möguleika sína í mælingum og hefur sú verið raunin að oft eru bæði tækin upptekin í mælingum á sama tíma. |
|
Geotracer 2200 er eitt fullkomnasta GPS landmælingatæki sem til er.
Tækið samanstendur af tveimur tveggja tíðna (L1/L2) GPS móttökurum,
tveimur GPS loftnetum og handtölvu ásamt ýmsum öðrum búnaði. Hægt er
að mæla með öllum þeim aðferðum sem algengar eru við GPS landmælingar
svo sem stöðumæling, "STATIK" og hreyfimæling, "RTK". Hreyfimæling
("RTK eða Stop&Go") er mæling sem byggist á því að annar móttakarinn
(Móðurstöð, Reference station) er á þekktum punkti. Hann sendir út
upplýsingar á örbylgju sem hinn mótakarinn (Hlaupari, Rover) nemur
og notar til að leiðrétta staðsetningu sína. Með þessu móti fæst
staðsetning punktar sem verið er að mæla í rauntíma og hægt er
að vista hana í minni handtölvunnar. Ekki er þörf á sjónlínu milli
móðurstöðvar og hlaupara, er því mjög fljótlegt að mæla með tækinu
þar sem ekki er þörf á að stilla upp móðurstöð nema einu sinni þó
mælt sé á stóru svæði. Af sömu ástæðu er tækið lítið háð veðri eða
birtu. Fjarlægð frá móðurstöð í hlaupara getur orðið allt að 10
km en það fer nokkuð eftir aðstæðum. Einnig er hægt nota sérstök
loftnet á móðurstöð og hlaupara og er þá mögulekt að mæla með
Hreyfimælingu í allt að 30-40 km fjarlægð frá móðurstöð. Tækið er
jafnvígt á innmælingar og útsetningar. Vegna langdrægni tækisins
er það mjög hentugt við mælingar landamarka, sumarhúsalanda, vega,
raflína og myndmælingapunkta svo eitthvað sé nefnt. Ef ekki er unnt
að nota Hreyfimælingu vegna aðstæðna eða fjarlægða er hægt að
mæla með stöðumælingu eins og hér er lýst. |
Einn maður mælir auðveldlega með tækinu eins og sést á myndinni hér til
hliðar þar sem verið var að setja út lóðarmörk, reyndar með góðri aðstoð.
Tækið er þannig byggt að mjög auðvelt er að vinna með það og öll gögn
eru aðgengileg. Gögn úr Hreyfimælingu ganga beint í Geodimeter 500
og 600 alstöðvar og er hægt að færa gögn beint úr handtölvu í alstöðvar og öfugt.Stöðumæling ("STATIK SURVEY") er framkvæmd þannig að annar GPS móttakarinn er staðsettur yfir þekktum punkti og safnar gögnum á minnisspjald en hinn móttakarinn er settur á þann punkt sem á að mæla og er gögnum safnað þar á minnisspjald eða beint í handtölvu. Mælt er í ákveðinn tíma í hverjum punkti eftir fjarlægð frá þekktum punkti og/eða eftir kröfu um nákvæmni. Hægt er að mæla nokkra punkta meðan stöðin á þekkta punktinum safnar gögnum. Með þessari mæliaðferð fæst meiri nákvæmni en með hreyfimælingu en ekki fæst niðurstaða úr mælingunum fyrr en reiknað hefur verið úr þeim í forriti sem kallast Geotracer. Með þessari mæliaðferð er best að mæla eldri hnitakerfi sem þarf að endurbæta eða tengja við nýja hnitakerfið ISN93. Ef tengja á hnitakerfi bæjarfélags við ISN93 er valinn einn eða fleiri punktar í bæjarkerfinu sem tengipunktar og þeir mældir inn frá tveimur eða fleiri þekktum punktum í ISN93. Aðrir punktar í hnitakerfi bæjarins eru síðan mældir úr frá þessum tengi punktum, hvort sem um er að ræða eldri punkta kerfisins eða nýja, svo sem myndmælingapunktar eða venjuleg fastmerki sem nota á til framkvæmdamælinga. Framleiðandi Geotracer gefur upp nákvæmni tækisins sem svo segir: Stöðumæling:
Geotracer 2200 getur notað allt að 12 gervitungl, notar L1 og L2 tíðni ásamt P-code. Sæti fyrir PCMCIA kort er innbyggt í móttakarana og er hægt að safna allt að 20MB á eitt kort þegar verið er að stöðumæla. |
Til eftirvinnslu mælinga er notað forritið Geotracer sem er eitt öflugusta
forrit sinnar tegundar. Gögnum er safnað á PCMCIA kort eða beint í minni
handtölvunnar þegar mælt er, og gögnin flutt í ferðatölvu þar sem reiknað
er út úr þeim. Forritið getur tekið við gögnum frá öðrum tegundum mælitækja
svo sem TRIMBLE, ASHTECH og LEICA og einnig á REINEX og ROGUE formi og
eru þau gögn notuð með gögnum frá Geotracer 2200 ef mælt er á sama tíma.Hægt er að skrifa út gögn á REINEX formi. Forritið birtir myndrænt á skjá allar mælingar og eftir útreikninga skekkjuellipsur. Með forritinu er hægt að varpa GPS hnitum (WGS84) í önnur hnitakerfi svo sem ISN93 eða staðbundin hnitakerfi. Einnig er hægt að reikna punkta sem mældir hafa verið á ferð t.d. mæling vega á bíl eða í flugvél vegna loftmyndatöku. Eftir útreikninga og útjöfnun er prentuð skýrsla sem gefur allar upplýsingar um mælingarnar og niðurstöður þeirra og gæði. Með Geotracer forritinu er hægt að meta stöðu gervitungla áður en farið er út að mæla og þannig hægt að meta hvenær staða gervitunglanna er best yfir daginn. Nánar um GPS kerfið GPS vefslóðir Heimasíða Spectra Precision |
![]() |
| Heimasíður | ||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|