Forsíđa
 Stofnfundur
 Dagskrá
 Tenglar
 Innganga í klúbbinn
 Mótsreglur á Akureyri
 Spjallborđ











 Vefhönnun: Portal



 

Telemark
1: Hérađ í Noregi
2: Skíđaađferđ.


Nú verður hin árlega Telemarkhelgi haldin, þann 17. - 19. mars. Í ár verður keppnin haldin á skíðasvæði Akureyringa í Hlíðarfjalli. Þetta er í sjötta skiptið sem hátíðin er haldin.

Dagskráin verður sem hér segir:

Á föstudaginn mæta menn í ,,Fjallið" skíða í flóðljósum. Stökkkeppnin byrjar
klukkan 19:00 upp við Strýtuskála.
Lyftur á neðra svæðinu loka kl. 19:00. Styrktaraðilar bjóða upp á veitingar þegar líður á stökkkeppnina.

Laugardagurinn hefst kl. 10:00 með keppni í nýrri grein, útfærslu á samhliðasvigi og þrautum í brautinni. Keppnin er með útsláttarfyrirkomulagi líkt og samhliðasvig og keppnisgreinin er kölluð
TELE-Cross.
Þegar klukkan er langt gengin í sex eru allir velkomnir í sund að Þelamörk
þar sem ,,rauðir” takast á við rest.
Eftir sundið liggja öll úrslit keppnisdaganna fyrir og Telemarkhóf, borðhald og verðlaunaafhending verður á skemmtistað í bænum.
Fylgist með næstu daga, þegar nær dregur að helgi á www.isalp.is

Búningakeppnina sem stendur yfir allan laugardaginn.

Á sunnudag vakna allir ferskir og skella sér á eitthvað skíðasvæði hér
norðan heiða þar sem verður skíðað fram eftir degi.

Föstudagur
Kl.14:00 Hlíðarfjall og skíðað að vild
Kl.19:00 Stökkkeppni við Strýtuskála

Laugardagur
Kl.10:00 TELE-Cross
Kl.13:00 Skíðað að vild
Kl.17:30 Sund í Þelamörk
Kl.20:00 Telemarkhóf

Sunnudagur
Kl.10:00 Telemarksveifla á skíðasvæði norðan heiða.